HVAÐERTUAÐGERA.IS

01 ÁÐUR EN ÞÚ SMELLIR

Hvað ertu
að gera?

Ókeypis verkfæri frá DORRIT:IS

Settu slóðina hingað. Við skoðum byggingu hennar án þess að opna síðuna eða senda slóðina frá tækinu þínu.

Fer aldrei af tækinu

02 EF EITTHVAÐ LÍTUR ILLA ÚT

01

Ekki opna

Ekki prófa tengilinn „bara til að sjá“. Lokaðu skilaboðunum.

02

Staðfestu sendanda

Hafðu samband eftir annarri leið—notaðu númer eða síðu sem þú þekkir.

03

Tilkynntu

Sendu grunsamlegt efni til viðeigandi fyrirtækis eða CERT-IS.

03 HVAÐ VEIT NETIÐ UM ÞIG?

Stafræna
fótsporið þitt.

Venjuleg vefsíða sér meira en flestir halda — án innskráningar, hakkara eða Hollywood-töfra.

01 // SJÁANLEGT NÚNA

Það sem þessi síða sér.

IP-staðsetning er ekki GPS og getur lent í næsta bæ, hjá netveitunni eða í röngu landshorni.
OPINBERT NETAUÐKENNISÆKI
Opinbera IP-talan þín…
Áætluð staðsetning
—
IPv4-talan þín
—
Netveita / ISP
—
ASN / netkerfi
—
Tímabelti IP-gagna
—
TÆKIÐ OG VAFRINNSTAÐBUNDIÐ
Vafri
…
Stýrikerfi
…
Skjár
…
Sýnilegt svæði
…
Tungumál
…
Tímabelti
…
Vélbúnaður
…
Tenging
…
Vafravarnir
…
User-Agent
…

Nákvæmt heimilisfang, lykilorð, skrár, myndavél og hljóðnemi sjást ekki sjálfkrafa. Vafrinn þarf sérstakt leyfi fyrir viðkvæmum aðgangi. VPN getur falið raunverulega IP-tölu en felur ekki endilega vafra-, skjá- eða tungumálaupplýsingar.

Einkavafri ≠ nafnleynd

Einkavafri geymir minni sögu á tækinu en felur ekki IP-töluna fyrir vefsíðum.

IP-staðsetning ≠ GPS

Niðurstaðan er gróf landfræðileg áætlun og getur verið töluvert röng.

Opin gögn ≠ frjáls aðgangur

OSINT má finna löglega, en opin niðurstaða veitir aldrei heimild til aðgangs eða árása.

02 // NÖRDAHORNIÐ MAX

Hversu mikið afhjúpar vafrinn?

Gagnsæ sjálfsúttekt sem verður til í vafranum, er sýnd aðeins þér og er hvorki vistuð né send til DORRIT.

STAÐBUNDIÐ SJÁLFSPRÓF

Krufðu stafræna fingrafarið þitt.

Einn smellur kortleggur vafra, kerfi, skjá, grafík, tungumál, tímabelti, tengingu, geymslu, leyfisstöðu og tæknigetu.
Staða greiningarBÍÐUR EFTIR ÞÉR
Sýnileg gagnamerki0
Staðbundið SHA-256 fingrafar—
BR
Vafri og stýrikerfi

Ýttu á greiningarhnappinn til að sjá niðurstöðuna.

HW
Tæki, skjár og grafík

Ýttu á greiningarhnappinn til að sjá niðurstöðuna.

NET
Net og síðusamhengi

Ýttu á greiningarhnappinn til að sjá niðurstöðuna.

IS
Tungumál, tími og svæði

Ýttu á greiningarhnappinn til að sjá niðurstöðuna.

PR
Persónuvernd og leyfisstaða

Ýttu á greiningarhnappinn til að sjá niðurstöðuna.

API
Vefgeta, miðlar og stillingar

Ýttu á greiningarhnappinn til að sjá niðurstöðuna.

KREFST SÉRSTAKS LEYFIS

Nákvæm staðsetning (GPS)
Vafrinn birtir leyfisglugga. Hnitin eru aðeins sýnd hér.Keyrist aðeins eftir að þú ýtir á hnappinn.

KEYRIR AÐEINS EFTIR SMELL

WebRTC-lekapróf
Athugar staðbundin vistföng eða mDNS-heiti án ytri STUN-þjóns og portaskönnunar.Notar engan ytri STUN-þjón og skannar engin port.

Prófið les aðeins upplýsingar sem vafrinn gerir venjulegri vefsíðu aðgengilegar. Það les hvorki skrár, klippiborð, myndavél né hljóðnema. SHA-256 gildið er reiknað staðbundið og getur breyst þegar stillingar, net eða tæki breytast.

03 // STAÐBUNDIÐ LAB

Snertu gögnin. Ekki senda þau.

Slóðagreining, terminal-skipanir og SHA-256 skráarfingrafar fara fram í vafranum. Við HIBP-leit er aðeins fimm stafa forskeyti tætigildis sent.
DORRIT LOCAL TERMINALSTAÐBUNDIÐ

DORRIT:IS // Hvað ertu að gera? local terminal

Skrifaðu help til að sjá staðbundnar skipanir. Ekki slá inn leyndarmál.

LAB-01 // URL X-RAYSTAÐBUNDIÐ

Slóð undir smásjá

Aðalverkfærið efst á síðunni sundurliðar slóðina án þess að heimsækja hana. Það merkir meðal annars HTTP, falin auðkenni, IP-hýsil, Punycode, óvenjuleg port og stytt lén.

OPNA SLÓÐAGREININGU ↑
LAB-02 // SHA-256STAÐBUNDIÐ

Staðbundið skráarfingrafar

Veldu skrá og reiknaðu SHA-256 með Web Crypto. Skráin fer ekki úr tækinu. Hámark þessa vafralabs er 100 MiB.

Engin skrá greindNafn, stærð, tegund og SHA-256 birtast hér.
LAB-03 // PASSWORD CORPUSYTRI LEIT EFTIR SMELL

Dulritunaröruggur slembigjafi + lekaleit

Búðu til 24 stafa prufugildi með crypto.getRandomValues eða prófaðu gildi gegn Pwned Passwords safni HIBP. SHA-1 tætigildi er reiknað í vafranum, aðeins fyrstu 5 stafir þess eru sendir og samanburður á fullu tætigildi fer fram staðbundið.

HIBP // k-anonymityEngin lekaleit keyrð.

SHA-1 er hér aðeins samhæfingarlykill fyrir leit, ekki ráðlögð lykilorðageymsla. Notaðu helst nýtt, myndað gildi eða lykilorð sem þú ert að taka úr notkun. Sjá frumheimild hjá HIBP

04 // SJÁÐU ÞIG HÉR

Þetta ert þú — ef þú leyfir.

Myndavélin opnast aðeins eftir smell og samþykki í vafranum. Straumurinn fer hvergi og stöðvast þegar þú lokar honum eða yfirgefur flipann.
SJÁÐU ÞIG HÉRMyndavélin er ekki virk
ÓVIRK

MYNDAVÉL MEÐ ÞÍNU LEYFI

Engin upptaka. Engin vistun. Engin sending.

Myndavélin er óvirk og ekkert er tekið upp.

05 // HRAÐAPRÓF

Hvað kemst hratt í gegn?

Prófið notar um 12 MB og hefst aðeins þegar þú ýtir á hnappinn. VPN, Wi-Fi, álag og fjarlægð frá mælipunkti hafa áhrif.
—MBPS ↓

STAÐBUNDIÐ NETPRÓF

Einfalt hraðapróf

Mælir svörun, niðurhal og upphal í vafranum. Notaðu niðurstöðuna sem viðmið, ekki endanlega sönnun gagnvart netveitu.
Svörun
— ms
Niðurhal
— Mbps
Upphal
— Mbps

07 // GRUNNVÖRN

Hvað er þegar komið í lag?

Sjálfsmat byggt á NIST, CISA, NCSC og CERT-IS. Það skannar ekkert, gefur enga vottun og merkingar eru ekki vistaðar.

08 // OSINT VERKFÆRI

Sjáðu það sem aðrir geta fundið.

Verkfærakista fyrir eigin öryggisúttekt, rannsóknir og staðreyndaprófun.

09 // FYRSTU VIÐBRÖGÐ

Ró. Röð. Sönnunargögn.

Stutt verkflæði byggt á leiðbeiningum CERT-IS og NIST. Rétt viðbragð fer eftir atviki; varðveisla gagna getur skipt máli áður en tæki eru hreinsuð.
01

Stöðvaðu áframhaldandi tjón

Ef peningar eða kort eru í hættu: hafðu strax samband við bankann eftir opinberri leið. Ef reikningur er yfirtekinn: notaðu hreint tæki, afturkallaðu virkar setur og læstu aðgangi.

02

Einangraðu — en hugsaðu áður en þú eyðir

Rjúfðu netsamband sýkts tækis eða takmarkaðu aðgang ef það stöðvar útbreiðslu. Ekki endursetja eða þurrka viðskiptakerfi í flýti ef greining, trygging eða kæra gæti þurft gögnin.

03

Varðveittu tímalínu og sönnunargögn

Skráðu hvað gerðist, hvenær, á hvaða tæki og hvaða aðgerðir voru teknar. Varðveittu frumskilaboð, pósthausa, skjámyndir, færslur, slóðir og viðeigandi logga.

04

Endurtryggðu auðkenni

Frá hreinu tæki: skiptu um viðkomandi lykilorð, afturkallaðu setur og tóka, endurskráðu MFA ef þörf er á og athugaðu endurheimtarleiðir, framsendingarreglur og innskráningarsögu.

05

Tilkynntu á réttan stað

Tilkynntu öryggisatvik til CERT-IS. Ef grunur er um refsiverðan verknað skaltu hafa samband við lögreglu. Fyrirtæki þurfa einnig að meta skyldur gagnvart Persónuvernd og einstaklingum.

06

Endurheimtu og lærðu

Endurheimtu úr þekktu hreinu ástandi, fylgstu með endurteknum merkjum og skráðu orsök, áhrif og úrbætur. Prófaðu að breytingarnar virki í raun.

10 // HEIMILDAKJARNI

Ekki „treystu mér“. Athugaðu sjálf/ur.

Frumheimildir og opinber leiðbeiningagögn sem mótuðu texta, verkfæri og fyrirvara síðunnar. Tenglar opnast hjá útgefanda.

11 // ÓÞÆGILEGI SANNLEIKURINN

Ég gæti notað þetta gegn þér.
Ég vel að verja þig.

HVAÐERTUAÐGERA.IS sýnir bara brot af því sem má finna. Með þolinmæði, kunnáttu og réttum OSINT-tólum er hægt að tengja saman ótrúlega mikið af upplýsingum.
WHITE HAT // MEÐ HEIMILD

Ég segi það óskömmustulega: ég gæti notað þessa kunnáttu gegn fólki. Það er hægt að finna veikleika, rekja stafrænar vísbendingar, ræna aðgangi og fara á eftir peningum, rafmynt, gögnum eða tækjum.

En kunnátta er ekki heimild. Að geta eitthvað gerir það ekki rétt. Ég vil vera réttu megin í netárásastríðinu: finna veikleikann með samþykki, útskýra hann á mannamáli og loka leiðinni áður en glæpamaður nýtir hana.

GETA ≠ LEYFI
MIKILVÆG NÁKVÆMNI

Venjuleg vefsíða — þar á meðal þessi — sér ekki hvert skref sem þú tekur og getur ekki bara tekið yfir tölvuna þína. Til þess þarf yfirleitt meira: blekkingu, spilliforrit, misnotaðan veikleika eða stolinn aðgang. Hættan verður raunveruleg þegar mörg lítil gagnabrot eru tengd saman.

01 // AUÐKENNI

Notandanafn verður að manneskju

Sama notandanafn, mynd eða netfang á mörgum stöðum getur tengt saman prófíla, vinnu, vini, áhugamál og gamla reikninga.

02 // VENJUR

Smáatriði verða að mynstri

Birtingartímar, bakgrunnur mynda, staðsetningarmerkingar og opin dagskrá geta gefið vísbendingar um hvar þú ert og hvenær þú ert ekki heima.

03 // INNVIÐIR

Lén og tæki verða að árásarfleti

DNS-færslur, vottorð, opin þjónusta, tæki og gömul kerfi geta sagt árásaraðila hvar veikasti punkturinn er.

04 // GERVIGREIND

Gögn verða að sannfærandi blekkingu

Gervigreind getur umbreytt opinberum brotum í persónuleg skilaboð, trúverðugar raddir, falskar myndir og hraðari árásir í miklu magni.

AI BREYTTI LEIKNUM

Árásarmaðurinn þarf ekki lengur að þekkja þig.

  1. 01
    Hraði

    Þúsundir opinberra gagnabrota má flokka og tengja saman á skömmum tíma.

  2. 02
    Persónusnið

    Almenn vefveiði verður að skilaboðum sem nefna vinnuna þína, vini eða nýlegan atburð.

  3. 03
    Eftirlíking

    Texti, rödd og mynd geta líkst fólki og fyrirtækjum sem þú treystir.

GERÐU ÞETTA NÚNA

Ekki verða eftir.

Þú þarft ekki að hverfa af netinu. Þú þarft að vita hvað er þar, fækka óþarfa upplýsingum og verja það sem skiptir máli.
  1. 01
    Leitaðu að sjálfum þér

    Nafn, netföng, símanúmer og notendanöfn — líka gömul.

  2. 02
    Lokaðu gömlum reikningum

    Ónotaður reikningur er óvarinn inngangur sem þú fylgist ekki með.

  3. 03
    Notaðu einstök lykilorð

    Lykilorðastjóri og passkeys eða tveggja þátta auðkenning þar sem hægt er.

  4. 04
    Fjarlægðu staðsetningarvísbendingar

    Skoðaðu myndgögn, opin innlegg, check-in og fasta rútínu.

  5. 05
    Uppfærðu og taktu afrit

    Tæki, vafrar og kerfi; prófaðu að afritin séu í raun endurheimtanleg.

  6. 06
    Staðfestu óvænt skilaboð

    Hringdu sjálfur í þekkt númer. Treystu ekki rödd, mynd eða skjáskotum einum.

ÓKEYPIS 21 MÍNÚTNA TÆKNIMAT

Viltu vita hvað sést um þig eða fyrirtækið þitt?

DORRIT fer yfir stafræna fótsporið, tækin, netið og helstu áhættur — mannamál, engin sölupressa.
BÓKA TÆKNIMAT